|
|
02.07.2009 20:40:34 / marthao
Mig langar allt í einu að skrifa örlítið blogg. Ekki á ég von á því að margir venji komur sínar hingað inn lengur en það er allt í lagi. Síðustu ár hafa verið mér mjög góð. Á fjörur mínar rak mann. Hann var það góður að ég er búin að eignast með honum tvö börn og svo yndislegur að hann er tilbúinn til að giftast mér og svo dásamlegur að ég er til í að giftast honum. Já, ég veit...þetta er orðið verulega væmið, en mér er alveg sama, ég ætla að hafa þessa færslu svona. Á laugardaginn ætlum við að ganga í það heilaga og þá verður litla drottningin okkar skírð og fær þá loksins formlega nafnið sitt. Ekki kvíði ég því að giftast honum Dúa mínum en mikið kvíði ég því að ganga á háu hælunum inn kirkjugólfið og reyna að anda í kjólnum sem er örlítið þrengri en mig minnti. Það er líka eitthvað dásamlegt við skírnina, ég á alltaf svolítið erfitt með að hemja tárin bæði þegar börn eru skírið og þegar fólk giftir sig og þess vegna eins gott að málningin í andlitinu á mér verði vatnsheld, útitex er líklega rétta tegundin. Veislan verður lítil og krúttleg. Við buðum einungis nánustu fjölskyldunni og vonum að aðrir séu bara feignir en ekki móðgaðir. Auðvitað þykir okkur jafn vænt um ykkur hin og áður og ég geri ráð fyrir að við setjum inn myndir á barnalandssíðuna fljótlega eftir helgina. Ef einhver hefur ekki lykilorðið er um að gera að senda tölvupóst, sms eða bara hringja í okkur en síðan er á nafni Sigurðar Odds.
Hafið það ávalt sem best Kv. Martha Sigr.
»
03.02.2009 08:50:50 / marthao
Góðan daginn heimur! Ég hef ekki skrifað mikið fyrir ykkur undanfarið en ég er ekkert hætt. Enn og aftur er er ég orðin undarleg í laginu og af þeim sökum hefur heilsan ekki verið upp á marga fiska, ég get þó ekki kvartað því væntanlega fæ ég verðlaun fyrir aumingjaskapinn í byrjun maí. Áætlanir gera ráð fyrir að það fjölgi á heimilinu 2. maí, sama dag og Fossavatnsgangan á að fara fram (það rembast því fleiri en en ég þann dag). Líklega er stóra ástæðan fyrir því að ekkert hefur verið skrifað hér inn lengi að ég ætlaði ekki að tala um pólitíkina en nú eru allir hinir búnir að bulla um sínar skoðanir svo að ég verð að vera aðeins með. Ég hef í kvikindisskap mínum dálítið gaman af því ástandi sem í landinu er. Ég hef nefnilega beðið eftir kreppu síðan ég var lítil stelpa. Það var oftast ekki mikið um peninga á æskuheimili mínu, þar sem pabbi minn var ævintýragjarn verktaki (og er enn að hluta). Ég man ekki eftir að hafa viljað hafa hlutina neitt öðruvísi heima hjá mér, en ég vildi gjarnan að önnur börn væru ekkert að fá neitt meira en ég. Ég passaði vel uppá dótið mitt í æsku og man eftir að hafa hugsað um að það væri ekki víst að tímarnir yrðu eins góðir þegar börnin mín yxu úr grasi eins og þegar ég var að alast upp, þannig að þá yrði gott að börnin mín fengju að njóta þeirra leikfanga sem ég hefði geymt fyrir þau. Ekki var ég sannspá sem krakki og börnin mín löngu búin að fá meira af nýjum leikföngum en þau þurfa og gott betur en það. Eitthvað er þó að breytast í heiminum í dag. Ég er ekki enn farin að kalla þetta kreppu en vissulega eru einhverjar breytingar að eiga sér stað. Ástæðan fyrir því að ég hef gaman að þessu ástandi er að uppgangurinn í Reykjavík var bara bóla (sem ég vissi nottla alltaf, bara gleymdi að segja ykkur það) og það afl sem dró landsbyggðarbörnin suður er laskað og jafnvel dáið. Ég hef alltaf þurft að hafa hundrað ástæður á takteinunum fyrir því að flytja ekki suður en núna skilja allt í einu alllir að auðvitað er betra að búa á Ísafirði en í Rvk. Sunnanpakkið hefur þó ekki sömu þolinmæðina og landsbyggðarpakkið hefur haft í gegnum tíðina, við áttum bara að bjarga okkur eða drullast til að flytja suður þegar fólki var sagt upp í hrönnum hér á Vestfjörðum og fasteignaverð hér hrundi en Reykjavíkurpakkið lemur í potta og pönnur þangað til Jóhanna Sigurðardóttir dregur skuldug rassgötin á þeim upp úr drullunni. Það merkilegasta er, að eftir langvarandi góðæri á Suðvesturhorninu virðist fólki ekki hafa dottið í hug að ástandið gæti breyst. Fólk er í vandræðum með að borga skuldir af heitum pottum og fellihýsum... þetta eru leikföng sem engum ætti að detta í hug að kaupa sér nema eiga fyrir því... það hefði verið farsælla fyrri alla að láta sig dreyma um kreppu framtíðarinnar í staðinn fyrir að búast við endalausum uppgangi. Að lokum vil ég bjóða velkomið heim það fólk sem hefur verið að skila ég úr hinni nýuppgötvuðu eymd borgarinnar. Kv. Martha
»
11.08.2008 22:04:44 / marthao
Ekkert bloggað í langan tíma... einhverjir kíkja þó enn hingað inn og þá er ástæða til þess að bulla pínulítið í kvöld. Eins og margir vita hef ég gaman af sauðfé, ég hef etið mikið af lambakjöti í gegnum tíðina, tekið á móti slatta af lömbum, gengið í mörgum góðum lopapeysum og knúsað nokkrar ær. Í dag er ég búin að finna leið til nýta mér kosti sauðkindarinnar enn betur og er búin að leggja ullarteppi á ganginn heima, þar sem áður voru flísar. Það verður að viðurkennast að ég var ekki alveg örugg um að teppatilraunin kæmi vel út og yfirleitt kom skrítinn svipur á fólk þegar ég sagðist ætla að kroppa flísarnar af og setja teppi í staðinn en í kvöld sá ég að teppið er hrein snilld! Litla dýrið mitt sat á miðjum ganginum og lék með dótið sitt, stærsta systirin sat við hliðina á honum með símann sinn og við endann á ganginum lá pabbinn með viðskiptablaðið. Enginn virtist sakna flísanna. Ég ákvað að leggjast á gólfið og finna fyrir mýkt og hlýju kindanna. Á sama augabragði rifjaðist upp fyrir mér hvað það var gott að leggjast á gólfið í stofunni heima í gamladaga og horfa á náttúrulífsmyndir í sjónvarpinu eða hlusta á Abba, Sven Ingvars eða Kötlu Maríu í plötuspilaranum (já, kommon það var ekki til endalaust af plötum heima hjá mér). Mikið var líka gott að koma heim í hádegismat þegar ég var að vinna í fiski og sofna í smástund á gólfinu því ekki mátti fara upp í sófa í fiskigallanum. Jamm, teppið er komið til að vera. Í blogglok vil ég benda á komment sem ég fékk fyrir u.þ.b. tvemur færslum síðan frá ókunnugum manni sem fannst gaman að lesa bloggið mitt, ég fagna því. Þið sem ekki hafið hælt mér lengi megið gjarnan hvetja mig til dáða. Góðar stundir.
»
21.06.2008 21:57:36 / marthao
Við Dúi höfum verið á ferð og flugi síðustu vikur...aðallega þó ferð. Okkar ferðamáti hefur verið "tjaldið í skottinu og hótel í bakhöndinni" og þrátt fyrir ýmis önnur markmið með okkar ferðum höfum við talað mikið um búsetu fólks á leiðinni hingað og þangað. Svo virðist sem sagan "Nýju fötin keisarans" eigi við í búsetuþróun landans. Enn eru í byggð hrjóstrugar sveitir á "hjara veraldar" þar sem ábúendur virðast vera ónæmir fyrir sögusögnum um að grasið sé grænna á malbikinu á suðvesturhorninu heldur en heima en gjöfular fallegar jarðir komnar í eyði.
En hvar er best að búa??? Á síðustu árum hef ég heyrt setninguna "það eru allir að fara suður" mjög, mjög oft. Þá er líklega betra að vera fyrir sunnan en fyrir vestan. Ekki satt? Kannski er það satt. En ef mér líður vel þar sem ég er, skiptir þá einhverju máli að aðrir fari? er ekki best að hver og einn velji fyrir sig?
Ég ætla ekki að fara að telja upp kosti og galla hvers byggðalags fyrir sig hér en ég veit og þú veist að við getum talað hvaða bæ sem er upp eða niður ef okkur dettur það í hug. Ísafjörður er samt án efa einn fallegasti og skemmtilegasti bærinn á landinu hvort sem hann er borinn saman við litla eða stóra bæi. Ísafjörður iðar alltaf af mannlífi. Hér djammar fólk mikið, skokkar mikið, fer mikið á skíði, spilar mikið á hljóðfæri og syngur. Hér eru fallegar verslanir, skemmtilegir skólar, besta skíðgöngulið á landinu, hægasta lognið, frábær tónlistarskóli, fallegasta fólkið (þegar við Dúi erum heima) og lang besta miðbæjarskipulagið.
Þá er ég komin að stóra málinu! stóru niðurstöðu mannlífsrannsókna á Íslandi!
Ef fólk hefur valið sér að búa á einhverjum sérstökum stað á landinu, þá er líklega ástæða fyrir því að fólkið hafi valið sér þá búsetu. Hvort sem okkur finnst ástæðan gild eða ekki þá hlýtur hún að skipta íbúann máli. Þess vegna er afskaplega slæmt og hreinn dónaskapur af manni að gera lítið úr þessari stóru ákvörðun fólks. Spurningar eins og "hvernig getur þú búið hérna?" á bara hreinlega ekki rétt á sér. Svona spurning er niðurlægjandi og ljót.
Ég hef oft sagt við fólk sem býr í Rvk "hvernig nennir þú að vera hér og bíða endalaust á ljósum?"...ég hef auðvitað ekki rétt á að segja þetta frekar en Reykvíkingur sem segir að fjöllin hér séu skelfileg og hér sé ekki byggilegt.
Það sem skiptir mestu máli fyrir okkur öll er að okkur líði vel heima hjá okkur og stöndum með ákvörðun okkar hvar okkur finnst best að búa, njótum kostanna á þeim stað og biðjum til guðs um bættar vegasamgöngur til Vestfjarða því ekki hafa ráðamenn haft krafta til þess að sinna Vestfjörðum eins vel og öðrum stöðum á landinu í þeim málum.
gott í bili.
»
11.04.2008 13:12:31 / marthao
Veturinn í vetur hefur næstum því verið eins og vetur æsku minnar. Snjórinn hefur verið meiri en síðustu vetur hér á Ísafirði og hann hefur haldist lengur í einu. Þörfin fyrir kuldaskó og snjóbuxur hefur því verið stöðug í margar vikur. Um og eftir páska komu þó nokkrir fallegir sólardagar og UE náði að komast út á götu í strigaskónum og flíspeysu að sippa og ég fékk fiðring í magann þegar ég hugsaði um svona daga í Bolungarvík í gamladaga. Okkur Ásu fannst nefnilega ástæða til að fara í strigaskó og út á peysunni ef það var farið að sjást aðeins í malbikið heima í Víkinni... en þá var líka eins gott að mömmur okkar sáu ekki til okkar því það þýddi úlpu og kuldaskó. Þetta er kannski ekkert merkileg saga en ég verð þó að segja að ég þekkti líka vonbrigðin þegar UE sá í gærmorgun að það hafði snjóað mikið um nóttina en hún sagðist ekki ætla út úr húsi fyrr en þetta væri allt farið. Annars er allt gott að frétta af okkur hér. Sá minnsti stækkar, skríður, stendur upp, klappar og segir „bappa“ á meðan, kann „hvað ertu stór“, segir „datt“ og lætur allt mögulegt detta, hann segir aaaaaaa við fólk og smellir í góm. Þar að auki er hann kominn með þrjár tennur og búið að lofa honum lambi í vor.
Kv. frá björtum og fallegum Ísafirði... Þar sem fasteignaverð á bara eftir að hækka ( um 30% )
»
18.02.2008 23:46:51 / marthao
Jæja, góðir lesendur Nú finn ég að andinn er að koma yfir mig en þá er líka kominn tími til að fara að sofa. Er ekki lífið flókið?
Bebba og co.. netfangið mitt er marthas(hjá)simnet.is UE yrði voða glöð að fá aðgang að síðunni. Kær kveðja Martha
»
23.07.2007 09:34:44 / marthao
Jæja, jæja, það er kominn mánudagur og meðgöngulengdin orðin 39
vikur + 4 dagar samkvæmt áætlunum sérfræðinga á sviðinu. Ekki er
enn vitað hvort kynið er á leiðinni í heiminn en mjög líklegt er
talið að annaðhvort sé um strák eða stelpu að ræða. Nú þegar sofa
þrjár stúlkukindur í rúmunum sínum hér inni og ég á satt að segja
erfitt með að sjá fyrir mér strák í hópnum... en hver veit?
Þrátt fyrir útstæða bumbuna höfum við fjölskyldan verið nokkuð
dugleg við að heimsækja sundstaði í sumar. Ekki hefur þó viðrað til
heimsókna í Sundhöll Ísafjarðar en við látum það ekki á okkur fá og
ferðumst venjulega til Bolungarvíkur í bestu sundlaug svæðisins (og
þó víðar væri leitað). Þar eru bestu búningsklefarnir (þó sakna ég
snyrtipinnanna sem unnu þar þegar ég var yngri) og langbesti heiti
pottur sem ég hef komið í. Það eina sem hefur angrað okkur "unga
parið" í þessum sundferðum er að stelpurnar vilja frekar vera inni
í sundlauginni en úti í pottunum í sólinni. Þetta þýðir að við
eyðum meira en helmingi tímans í að vera inni að fylgjast með þeim
í sundinu (og nokkrum öðrum börnum því margir foreldrar halda enn
að sundlaugaverðir séu barnapíur og beri alla ábyrgð á lífi barna
þeirra).... Við urðum því heldur betur glöð þegar Grímur Atlason
bæjastjóri Bolungarvíkur sagði frá því að til stæði að gera
vatnsrennibraut úti, við hliðina á heitupottunum. Enn glaðari urðum
við næst þegar við fórum í sund og rennibrautin var næstum tilbúin
en til stendur að opna hana um næstu mánaðarmót. Ég vona að allir
sem eiga leið hjá verði dulegir að nýta sér sundlaugina í
Bolungarvík og sýna með því að við sem búum á svæðinu fögnum því
sem gert er gott og hættum að grenja yfir því að það sé ekki
fullkomin laug akkúrat á Ísafirði. (ath. þetta er ekki pólitískt
blogg)
Kv. Martha
»
08.06.2007 13:48:44 / marthao
Ég hef verið í svolitlum vandræðum með þetta blogg síðustu
mánuði. Áður notaði ég bloggið til að tjá mig um líf hinnar
einstæðu móður og til að kvarta yfir hinu og þessu en núna veit ég
hreinlega ekki yfir hverju ég á að kvarta.
Auðvitað gæti ég kvartað yfir orkuleysi og verk hér og verk þar
vegna óléttunnar en orkuleysi og smá verkir eru svo smávægilegar
aukaverkanir þegar ég horfi á þá staðreynd að ég er ein af þeim
heppnu sem fá að eignast börn. Ég gæti líka kvartað yfir því að
dýrið mitt er á hinum endanum á landinu að hitta pabba sinn, en það
er svo gaman hjá henni að ég ætla ekki einusinni að kvarta yfir
því, þó það sé tómlegt í kotinu þar sem Dúadætur eru líka í frí frá
okkur þessa dagana.
Bráðum er komið ár síðan þessi mynd var tekin

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá (enda
gróðurhúsaáhrifin í algleymi).
'Eg vera klaufi, setja myndir.... hún er í albúminu hér neðst
til vinstri þessi ágæta mynd 
Kv. Martha
»
14.05.2007 14:01:26 / marthao
Jæja, nú er kominn tími á færslu.
Takk fyrir kommentin á síðustu færslu, gaman að sjá ykkur hér

Frétt dagsins er að UE missti framtönn uppi í gær og hefur nú
þetta dásamelga tannlausa bros 7 ára stelpu. Eftir að hafa "giggað"
töninni í nokkra daga losnaði hún loksins almennilega þegar hún
fékk hjálp JM fóstursystur sinnar við "giggið".
Aðrar stórar fréttir eru þær að við Dúi erum að kaupa okkur hús
saman Ekki veitir af undir allt stóðið. Húsið er staðsett mitt á
milli Bolungarvíkur og Flateyrar, í Seljalandi á Ísafirði. Ég er
orðin mjög spennt að flytja í nýja húsið enda töluvert óhagræði í
því að búa á tvemur stöðum. Hver man td. hvoru megin var ný búið að
kaupa klósettpappír og hvar tannkremið er búið.
það verður sem sagt nóg að gera í sumar, gert er ráð fyrir að
litla barnið fái að líta dagsljósið í júlí og í Júní verður
væntanlega flutt í nýja húsið. Nú bíða bara allir eftir sumrinu
(eins og Bubbi) og því að hitatölurnar fari hækkandi.
Kv. Martha
»
29.03.2007 08:57:35 / marthao
Hér er ég á ný.
Já, ég veit að ég sést ekki, eins og þrjátíu manns hafa bent mér
á síðustu daga þá er ég frekar föl. Það sem mér hefur líka verið
bent á að það er farin að myndast einhver undarlegur útvöxtur á
kviðnum á mér og ótrúlegasta fólk hefur þurft að koma við þetta
skrítna fyrirbæri. Ekki veit ég hvort fólk er að tékka á því
hvað þetta er eða hvort alla hefur bara alltaf langað til að
koma við mig og sjá sér tækifæri núna... en elskurnar mínar...
hendur mínar ná enn framfyrir útvöxtinn svo ég næ enn að slá á
fingur þeirra sem vilja snerta.
Ástæða fölva og útvaxtar hjá mér er sú að von er á barni í lok
júlí. Jammm.. enn gerir vindfrjóvgunin vart við sig og nú virðist
vindurinn hafa komið úr Önundarfirði. Hætt er við að afkomandinn
verði bæði hærri og háværari en fyrirbærið sem dvaldi áður í
þessari bumbu en um kyn og menntun er ekki vitað.
Kv. Martha
»
02.03.2007 15:49:26 / marthao
Í dag er rok á Ísafirði. það mynnir mig á Hvanneyrina góðu og
pizzurnar í Skógarbökunni í Borgarnesi. Jafnvel Lilju og bríserinn,
Búðarklett og gamla sénsa, sem ég hafði kannski ekki séns í... og
líka hina fjölmörgu sem höfðu ekki séns í mig.
Tímarnir breytast og sem betur fer er ég ekki lengur að leita að
hinum eina rétta á Búðarkletti... Oddný Steina orðin mamma, Bibba
kennari, Lilja í útlöndum, Þórunn Edda húsbyggjandi... já, munið
þið ædol/pizzukvöldin hjá Þórunni Eddu? ... og ég orðin ráðsett og
hef ekki smakkað bríser.... lengi lengi... En hvar ætli Rikki sé?
... ætli stelpurnar á Bifröst séu farnar að mæta í fötum á
djammið?
Það væri gaman ef þið settuð eitthvað um stöðu ykkar í dag í
kommentin hjá mér... hvort sem þið eruð Hvanneyringar, VMAingar,
Bolvíkingar eða aðrir vitleysingar.
Svona er rokið... maður bullar bara..
»
16.02.2007 15:13:12 / marthao
Mig langar til að koma með svolitla ábendingu.
Ef þú talar um ungabörn, hættu því þá. Þessi litlu kvikindi
heita UNGBÖRN en ekki UNGABÖRN. Það er nefnilega þannig að UNGAR
EIGNAST EKKI BÖRN!!! Kaupir þú kannski ungabarnaföt? nei, ég hélt
ekki. Þú kaupir auðvitað ungbarnaföt á ung börn. Ef þú trúir mér
ekki, spurðu þá bara Fríðu gömlu á Skjaldfönn, hún er miklu eldri
en þú og hún veit þetta betur en þú.
Kv. Martha
»
08.02.2007 22:42:57 / marthao
Já..nú ertu hissa!
Þú hélst að ég væri hætt að
blogga J
En það sem þú vissir ekki er að ég er
rétt að byrja! Það hefur samt háð mér svolítið að ég hélt að ég
hefði ekkert til að blogga um.... svo las ég bókina um Bono og
þegar honum dettur ekkert í hug til að semja um, semur hann um það
að hann hafi ekkert að segja...
...það er líka hægt að nota Ísl.
aðferðina og tala um veðrið. Eftir að hafa búið hér á Ísafirði í
eitt og hálft ár finnst mér ég búa í veðra-himnaríki... kannski er
það afleiðing vistarinnar á Hvanneyri og Búðardal þar sem rigning
og rok eru normið. Sólin hefur sem sagt verið dugleg að skína á
okkur hér á Ísó eftir að hafa verið í straffi á bakvið skýin í
nokkrar vikur.
...einnig er vinsælt að fitja upp á
umræðunni sem byrjar á “finnst þér ekki hræðilegt að...” og í takt
við síðustu Kastljósþætti þá væri hægt að botna setninguna með
“...drengirnir hafi verið misnotaðir í Breiðuvík”. Vissulega er
slæmt að börn hafi ef til vill verið lamin og pínd í fortíðinni en
er ekki svolítið seint í rassinn gripið þegar drengjaheimilið hefur
verið lokað í 30 ár??? Ekki ætla ég að fara að borga þeim pening
núna til að kaupa vasaklúta til að þurrka tárin. Hvað þá ef þeir
voru aðallega að pína hvern annan.
Það getur verið að ég sé voðalega
harðbrjósta og grimm en við berum jú öll ábyrgð á eigin lífi og
mörg okkar fá verkefni í lífinu sem erfitt er að sætta sig við og
vinna úr. Verkefnin eru ólík og misjafnlega erfið en við getum ekki
öll lagst niður og hugsað um það versta sem fyrir okkur hefur komið
og heimtað svo bætur.
Lífið er skemmtilegt og við getum ekki
leyft fólki úr fortíðinni að skemma það fyrir okkur....
Já... ert þú að hugsa núna “þetta getur
hún sagt, sem hefur aldrei lent í neinu”? Ég get sko sagt ykkur það
að ég hef lent í ótrúlegustu hlutum:
-Benni Sig kallaði mig stundum
útstæðarassgat (andleg meiðing, þrír vasaklútar frá ríkinu þar sem
ég var í ríkisreknum grunnskóla)
-MPÖ plataði mig oft til að koma í hans
herbergi, bara til að slökkva ljósið þegar hann nennti ekki að
standa upp sjálfur (andlegt ofbeldi á heimili, sálfræðiaðstoð og 2
vasaklútar)
-Skólastjórinn rak mig út úr tíma fyrir
að gera nákvæmlega ekki neitt!! (afsökunarbeiðni frá ríkinu og
skólastjórnendum og 3 vasaklútar)
-Svo var hljóinu mínu, sem ég átti í
æsku mokað, ásamt voðamörgum rúmmetrum af snjó, ofan í grifju í
Bolungarvík –þetta var voðalega sárt (Bolungarvíkurbær er pottþett
bótaskildur og ég þarf líka sálfræðimeðferð vegna þess andlega
áfalls sem ég fékk þegar ég fann hjólið loks riðgað og beiglað um
vorið/sumarið)
Læt þetta duga í bili, láttu drauga
fortíðarinnar ekki ná í rassgatið á þér
Kv. Martha
»
21.11.2006 14:08:32 / marthao
Í dag eru 7 ár síðan drottning morgunsvefnsins smeigði sér í
þennan heim. Þá féllu stórar flyksur af snjó niður á jörðina úti á
meðan Unnur Eyrún fæddist hér inni á sjúkrahúsinu á Ísó. Til
hamingju með daginn undrið mitt.
UE heldur áfram að skila góðum árangri í skólanum þó svo að
meginhluti skólastarfsins fari fram á þeim tíma sem er henni
náttúrulegur svefntími. Það veldur mér þó áhyggjum að hún er nú
þegar farin að segja mér frá því að hafi sofnað í skólanum. Ég vona
að það sé bara staðreyndavilla hjá henni. Tja...ekki veit ég hvert
ungdómurinn stefnir ef börnin eru farin að leyfa sér að sofna í
skólanum!
það hefur verið nóg að gera hjá mér síðustu vikur. Ég hef bætt
nokkrum velvöldum blómum í mannlífsflóruna í kringum mig sem hafa
bætt líf okkar mæðgna og gert það líflegra. Á sama tíma hafa vinir
og kunningjar kvartað yfir vanrækslu þannig að við í Kammerkórnum
ákváðum að taka upp geisladisk til að þið getið áfram notið raddar
minnar hvenær sem er (reyndar í bland við aðrar raddir) þó svo að
ég hringi minna...og bloggi enn minna.
Ein saga úr kirkjugarðinum að lokum:
ÖÞÖ -dó (að hætti Hómer Simpson)
MSÖ -hver dó (alltaf jafn fyndin..)
ÖÞÖ -þessi, Þessi og þessi ( og benti á leiðin)
Kv. Martha
»
27.10.2006 09:16:39 / marthao
Tja.... hvað má skrifa á netið og hvað ekki?
Ég get amk sagt ykkur að ég er ekki lengur "þrítug, einstæð
móðir í Búðardal".
Þrítug verð ég aldrei aftur...
Ég bý ekki lengur í Búðardal, ég bý á mun fallegri og skemmtilegri
stað...
En svo er það spurning um skilgreiningu á því hvenær í ferlinu
einstæð móðir er orðin móðir. Ferlið er amk byrjað 
Meira ætla ég ekki að segja þar sem ég er að stelast til að
blogga í vinnunni og það er ekki við hæfi.
Jú, annars. Eitt textarugl áður en ég hætti...
Í gamladaga söng ég "Ást, hvað er nú það? er það bara þriggja stafa
orð, notað í sjálfsölum?". MPÖ gerði stólpa grín af mér, enda átti
að segja ....í "skáldsögum". Hann hafði auðvitað efni á því að gera
grín að mér. Á svipuðum tíma söng hann hátt og
snjallt "Reykjavíkja" í staðinn fyrir "hey, kanína".
Góðar stundir
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 40174
|